Sea-Doo SPARK TRIXX

Vinsælasta sæþota á Íslandi fyrr og síðar

Bylting í leik og gleði

TRIXX pakkinn

Leiktu þér eins og aldrei áður á jet-ski. Vippur, dífur, prjón og snúningar er leikur einn á hinni byltingarkenndu Sea-Doo Trixx. 

Flottari trikk, betri stjórn

Stillanlegt trim

Á Trixx er stillanlegt VTS trim. Hægt er að breyta afstöðunni á jettinu beint úr stýrinu fyrir betri dráttargetu eða meiri leik. 

Prjónaðu

Settu trimmið í max

Trixx kemur með auka fótstigum fyrir prjón og leikaraskap. Ef VTS trimmið er sett í max prjónar þotan sig upp á endann. 

 

Létt en sterkbyggð

Polytec skrokkur

Polytec er harðgert og létt efni, gerði okkur kleift að gera léttasta sæþotu skrokk allra tíma án þess að fórna styrknum.